Rafrænar sendingar gagna
Hægt er að senda gögn með rafrænum hætti í gegnum vefgátt dómstólanna. Um er að ræða sameiginlega vefgátt héraðsdómstólanna, Landsréttar og dómstólasýslunnar.
Héraðsdómstólarnir og Landsréttur munu nota þessa vefgátt til þess að senda og taka á móti rafrænum gögnum með öruggum hætti, þar til sameiginleg réttarvörslugátt dómstólanna verður komin í fulla virkni.
Slóðin á vefgáttina er https://vefgatt.domstolar.is en nauðsynlegt er að nota rafræn skilríki til þess að skrá sig inn.
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um móttöku gagna sem send eru frá dómstól og innsendingu gagna til dómstóls.